Planið fyrir 2026
(English below)
Undanfarið er ég búin að vera með naumhyggju og nægjusemi aðeins á heilanum.
Mig hefur lengi langað til að hætta að "eyða peningum í vitleysu" eins og ég hef oft verið að gera því eftir að ég fór í magahjáveitu 2020 og hætti að geta "borðað tilfinningar mínar" þá hef ég oft verið að "kaupa tilfinningar mínar".
Mig hefur lengi langað til að hætta að "eyða peningum í vitleysu" eins og ég hef oft verið að gera því eftir að ég fór í magahjáveitu 2020 og hætti að geta "borðað tilfinningar mínar" þá hef ég oft verið að "kaupa tilfinningar mínar".
Þetta er samt allt samhangandi vandamál.
Að temja sér nýtt eyðslumunstur er ekki eitthvað sem man gerir á nokkrum vikum og það tók mig allt árið 2024 og rúmlega helminginn af 2025 að læra að ég yrði að breyta því hvernig ég hugsa um peninga og að ég þyrfti að breyta öllu í mínu lífi til að ná endum saman.
Ég er komin með smá plan fyrir árið 2026 sem ég ætla að deila hér.
Janúar
"Kaupa ekkert" mánuður. Ég æta að:
- Borga alla reikninga
- Taka afganginn af peningunum mínum út í seðlum
- Skipta þeim í 4 hluta og nota umslaga aðferðina til að skipuleggja fjármálin
- Skrifa niður það sem mig langar í og kaupi ekki
- Taka afganginn af peningunum og nota til að borga niður skuldir (nóg af þeim!)
Ég er að fara til Rúmeníu í janúar á ráðstefnu svo það verður örugglega alveg krefjandi að kaupa ekkert. Ég ætla að kaupa einn Rúmeníu segul á ísskápinn, en held að ég kaupi bara Rúmeníu, en ekki bæði Búkarest og Sibiu segla. Kannski segull fyrir landið nægi þegar ég er í Evrópu og fylkið í stærri löndum (BNA t.d.)? Þarf að taka ákvörðun um það!
Febrúar
- Endurtaka skref 1-3 frá janúar.
- Skoða listann sem ég skrifaði og athuga hvort eitthvað af þessu eru hlutir sem:
- ég þarf
- mig langar virkilega í
- Kaupa það sem ég þarf eða langar í af listanum
- Skrifa nýjan lista og ekki kaupa neitt sem fer á þann lista, bara af janúar listanum
- Taka afganginn af peningunum og borga skuldir
Mars
Endurtaka febrúar. Ég verð í Eistlandi í viku í mars með háskólanum og ég ætla þá að kaupa það af febrúar-listanum sem ég þarf og einn segul á ísskápinn því ég gleymdi því þegar ég var þar 2020!
Apríl
Annar "kaupa ekkert" mánuður. Núna bætist bara á mars-listann ef það er eitthvað sem ég þarf/langar virkilega í.
Maí og júní, ágúst og september, nóvember og desember verða síðan endurtekningar á febrúar en maí, júlí og október verða "kaupa ekkert" mánuðir.
Ég er svo heppin að synir mínir eru mjög nægjusamir og hafa alltaf átt í erfiðleikum með að eyða peningum því þeim langar svo sem aldrei í neitt. Af og til gefast headphones, lyklaborð og tölvumýs upp og þá þarf að kaupa nýjar, en ég ætla að láta þá vita að við munum ekki kaupa nýja tölvuhluti í janúar, maí, júlí og október, svo ef eitthvað bilar í þeim mánuðum verðum við að finna leiðir til að láta okkur nægja það sem við eigum.
En hvað má ég kaupa í "kaupa ekkert" mánuði?
Svarið er einfalt. Nauðsynjar.
En hvað eru nauðsynjar?
- Matur (til að elda heima)
- Lyf
- Almennar snyrtivörur (sjampó, hárnæring, handsápa)
- Hreingerningarefni (þvottaduft, sápulögur)
Einn og einn kaffibolli er innan marka ef ég fer á kaffihús að læra eða hitta vinkonur mínar, svo framarlega sem það eru til peningar fyrir því í umslaginu! Ef það eru ekki til peningar í umslaginu, þá kaupi ég mér ekki kaffi og læt vatn nægja (hydration hax)!
Í hinum mánuðunum er ég með listann frá mánuðinum áður og ég held að ef ég þarf að bíða í heilan mánuð áður en ég "má" kaupa eitthvað, þá mun mig ekki langa í það lengur og "langar í" parturinn af listanum endi á að verða ekki keyptur, bara það sem er á þarf listanum... ég held líka að sumt af því sem ég held að ég þurfi séu ekki í alvörunni hlutir sem ég þarf!
(Translated with AI)

Ummæli
Skrifa ummæli