Rúmenía 1
(English below)
Eftir 2 daga í Rúmeníu hef ég komist að því að ég skil talsvert meira hér en ég gerði í Ungverjalandi þar sem skildi ekki nema orð á stangli. Rúmanska er austur rómanskt mál með áhrifum frá grísku, tyrknesku og slavneskum málum, en minnir samt mikið á spænsku og ítölsku. Þar sem ég hef lært frönsku og skil spænsku þokkalega, sé ég uppruna orðanna þó stafsetningin sé aðeins önnur. Reyndar tekur rúmanska mikið úr ensku og "rúmenskar" orð eins og construction (construcție) má sjá hér á skiltum þar sem miklar framkvæmdir virðast vera víða í og við Sibiu eins og stendur.
Aksturinn hingað frá Búkarest var fáránlega tímafrekur því það voru framkvæmdir á 150 kílómetra "kafla" á tæplega 300 kílómetra leið!! Þetta var eins og að keyra í gegnum framkvæmdirnar á Reykjanesbrautinni, nema í 3 klukkutíma!
Ég er hingað til bara búin að borða flugvallarpizzu og snarl úr kjörbúðinni, en í kvöld ætlum við að fá okkur alvöru mat og ég vil helst eitthvað mjög þjóðlegt eins og sarmale og papanasi.
Ráðstefnan byrjar svo á morgun og það er búið að plata mig til að vera fundarstjóri í fyrramálið.
Rúmenska lei-ið er tæplega 30 íslenskar krónur, kaffibollinn kostar 15 lei á góðu kaffihúsi og bílastæðagjaldið á sólarhring er líka 15 lei... erum við ekki að borga 600 kall á klukkutímann heima?
-------------
After two days in Romania, I’ve realized that I understand considerably more here than I did in Hungary, where I barely understood a word. Romanian is an Eastern Romance language with influences from Greek, Turkish, and Slavic languages, but it still resembles Spanish and Italian quite a lot. Since I’ve studied French and understand Spanish reasonably well, I can see the origins of many words, even though the spelling is slightly different. Romanian also borrows heavily from English, and you can see “Romanianized” words like construction (construcție) on signs here, as there seem to be extensive construction projects all around Sibiu at the moment.
The drive here from Bucharest was ridiculously time-consuming because there was roadwork on a 150-kilometer “stretch” of a route that’s just under 300 kilometers in total!! It was like driving through the construction on Reykjanesbraut—but for three hours straight!
So far, I’ve only eaten airport pizza and snacks from a convenience store, but tonight we’re planning to have a proper meal, and I’d really like something very traditional like sarmale and papanasi.
The conference starts tomorrow, and I’ve somehow been talked into being a moderator first thing in the morning.
The Romanian leu is just under 30 Icelandic krona, a cup of coffee costs 15 lei at a good café, and parking for 24 hours also costs 15 lei… aren’t we paying around 600 ISK per hour back home?

Ummæli
Skrifa ummæli