Fara í aðalinnihald

Naumhyggja eða nægjusemi?


(English below)

Ég hef lengi verið hrifin af því að eiga ekki of mikið dótarí og eftir að hafa flutt 48 sinnum á minni 48 ára ævi, þá hefur mér lærst að heimili er ekki draslið sem man á heldur umhverfið sem man skapar sér.

En hver er munurinn á naumhyggju og því að eiga einfaldlega ekki of mikið?

Íslensk nútímamáls orðabók skilgreinir naumhyggju svona:
stefna í listum sem einkennist af einfaldleika og stílhreinum formum, mínimalismi.
Einfaldleiki er útskýrður sem:
það að eitthvað er einfalt, ekki flókið.
En naumhyggja er ekki endilega það sem ég stefni að. Það er eiginlega frekar að eiga nóg en ekki of mikið. Nægjusemi og hófsemi er sennilega það sem kemst næst því að eiga við þann “stíl” sem ég vil tileinka mér í lífinu. Ég er ekki búin að því og það er sennilega aldrei hægt að “klára” að einfalda heimili sitt á meðan man á börn sem búa heima og hefur áhugamál sem taka pláss (útivist og prjónaskapur), en ég vil reyna að eiga ekki of mikið.

Ummæli

Vinsælar færslur