Reglur ársins 2026
(English below)Sennilega þykir engum gaman að setja sér ófrávíkjanlegar reglur í lífinu, en stundum, þegar staðan er þannig, verðum við að hafa reglur til að allt gangi eins og það á að ganga.
Þar sem yngri sonurinn er að fara til Japan sem skiptinemi og það er reikningur upp á 1,6 milljónir í heimabankanum mínum sem á að greiða 1. júní, þá þarf verulega að herða "sultarólina" á þessu heimili næstu mánuði.
Ég segi sultarólina í gríni, en ég þarf samt að spara allt sem hægt er að spara, svo ég setti mér nokkrar reglur fyrir næsta ár, eitthvað af þeim er í síðasta pósti, en hér eru nokkrar sem ég held að muni hjálpa mér mikið.
"Reglurnar"
- Ég ætla ekki að kaupa neitt á netinu. Ég má skoða innlendar vefsíður, en ef ég vil kaupa eitthvað, verð ég að fara í búðina en ekki panta það online og ég ætla ekki að kaupa neitt af erlendum vefsíðum og ætla að reyna að skoða þær ekki einu sinni. Amazon, Temu, Shein, Boozt... þetta er allt á bannlista! Mér finnst svo leiðinlegt að fara í búðir að þetta verður strax til þess að ég mun versla minna.
- Ég ætla bara að nota peninga. Mér leiðast seðlar og klink og hef ekki notað cold hard cash í mörg ár nema ef einhver hefur gefið mér seðla, svo það að þurfa að borga með peningum mun sennilega líka verða til þess að ég kaupi minna.
- Ég ætla að nota tækifærið og fara að safna hári. Það kostar mig 100-125 þúsund á ári að fara í klippingu og litun. Ég fer yfirleitt á 12 vikna fresti og þetta eru um 25.000 krónur í hvert sinn með klippingu, litun og toner. Ég ætla að sleppa þessu alveg og taka gráu hárin í sátt (þau eru samt ekki mjög mörg... held ég).
- Ég ætla ekki að endurnýja kortið mitt í WorldClass. Ég er búin að vera með skólakort undanfarin ár og hef verið að borga 8.800 á mánuði. Í staðinn ætla ég að gera jóga heima, fara út að hlaupa og gera æfingar með eigin þyngd fyrir styrk (það eru til nokkur lóð hérna heima líka). Mögulega fer ég líka aftur að synda, hef ekki gert það að neinu ráði í 20 ár!
- Ég ætla bara að kaupa skyndibita á 6 vikna fresti. Mig langar ekki að hætta alveg að kaupa skyndibita, en við höfum verið að gera það svona 2x í mánuði og það er bara of mikið því það er amk 6.000 kr í hvert skipti, sennilega er meðaltalið nær því að vera 8.000, því stundum er reikningurinn örugglega um 10.000 (ég er að tala við þig Arabian taste... en omg hvað það er gott!!)
- Ég ætla að taka nesti með í vinnuna og senda yngri strákinn með nesti í skólann. Ég er hræðileg með það að gera nesti og hef alltaf verið. Aðal ástæðan er hugmyndaleysi og leti, en núna verð ég að taka mig til í andlitinu! Við megum kaupa okkur hádegismat 2x í mánuði (það flokkast ekki sem skyndibiti, ég fæ mér salat eða súpu í Hámu og hann fær sér pasta í bakaríinu).
Kannski er þetta komið, en kannski bætist eitthvað við þegar ég sé í alvörunni hvernig þetta gengur. En svo eru nokkrir hlutir sem ég ætla ekki að kaupa sama hvað:
- skór
- föt
- útilegudót
- göngudót
- garn (nema einhver biðji mig um ákveðna peysu sem þarf ákveðið garn í)
- kerti
- glös
- skrautmuni
- Dót á pallinn
- snyrtivörur (nema til að koma í staðinn fyrir eitthvað sem klárast í project pan)
- jólaskraut
- bækur
- tölvutæki (nema kannski 1 mús handa eldri syninum)
Ég er eiginlega farin að hlakka helling til að byrja og sjá hvernig þetta mun ganga hjá mér, það er alltaf gott að setja sér markmið og skora á sjálfa sig og ég held að þetta ár verði frábært og muni kenna mér hluti um sjálfa mig sem vissi ekki áður :)
‐‐-----‐---------
Probably no one enjoys setting themselves inflexible rules in life, but sometimes, when circumstances are what they are, we have to have rules so that everything runs the way it should.
Since my younger son is going to Japan as an exchange student and there is a bill of 1.6 million in my online bank that needs to be paid on June 1, we really need to tighten our belts in this household over the next few months.
I say “tighten our belts” jokingly, but I do need to save everything that can possibly be saved, so I set myself a few rules for the coming year. Some of them were in my last post, but here are a few that I think will help me a lot.
“The rules”
● I am not going to buy anything online. I may browse Icelandic websites, but if I want to buy something, I have to go to a physical store instead of ordering it online. I am not going to buy anything from foreign websites and will try not to look at them at all. Amazon, Temu, Shein, Boozt… all of that is banned! I dislike going to stores so much that this alone will immediately make me shop less.
● I am only going to use cash. I dislike banknotes and coins and haven’t used cold hard cash in many years unless someone has given me cash, so having to pay with cash will probably also make me buy less.
● I am going to take the opportunity to let my hair grow out. It costs me 100–125 thousand ISK per year to get haircuts and coloring. I usually go every 12 weeks and it’s about 25,000 ISK each time for a cut, color, and toner. I’m going to stop this completely and accept the gray hairs (there aren’t very many… I think).
● I am not going to renew my WorldClass gym membership. I’ve had a student card for the past few years and have been paying 8,800 ISK per month. Instead, I will do yoga at home, go running outside, and do bodyweight strength exercises (there are also a few weights here at home). I might also start swimming again—I haven’t really done that in 20 years!
● I am only going to buy fast food every six weeks. I don’t want to stop buying fast food completely, but we’ve been doing it about twice a month, and that’s just too much since it’s at least 6,000 ISK each time, and the average is probably closer to 8,000 because sometimes the bill is definitely around 10,000 (I’m talking to you, Arabian Taste… but OMG it’s so good!!).
● I am going to bring lunch to work and send my younger son to school with a packed lunch. I am terrible at making packed lunches and always have been. The main reasons are lack of ideas and laziness, but now I just have to pull myself together! We are allowed to buy lunch twice a month (that doesn’t count as fast food—I get a salad or soup at Hámu and he gets pasta at the bakery).
Maybe this is it, or maybe something will be added once I actually see how this goes. But then there are some things I am not going to buy no matter what:
• shoes
• clothes
• camping gear
• hiking gear
• yarn (unless someone asks me to make a specific sweater that requires specific yarn)
• candles
• glasses
• decorative items
• items for the patio
• cosmetics (except to replace something that runs out as part of a project pan)
• Christmas decorations
books
• electronics (except maybe one mouse for my older son)
I’m actually really starting to look forward to getting started and seeing how this will go. It’s always good to set goals and challenge yourself, and I think this year will be great and will teach me things about myself that I didn’t know before :)

Ummæli
Skrifa ummæli