Heimskustu þjófar í heimi?


Þegar ég mætti heim til frænku minnar í fína einbýlishúsahverfið að sækja bílinn minn um hádegi á sunnudegi, komumst við frænkur að því að það hafði verið farið inn í bæði bílinn minn og hennar.

Ég segi “farið inn í” en ekki “brotist inn í” því af undarlegri tilviljun voru báðir bílarnir ólæstir, þrátt fyrir að við séum almennt séð frekar ábyrgar fullorðnar manneskjur. Ég hafði þurft að sækja jólagjafir í bílinn minn og hélt að ég hefði læst honum þar sem ég gekk frá honum með fullar hendur og hún hafði að sama skapi verið með fullar hendur og gleymdi að læsa sínum.

Bíllinn hennar sem var farið inn í er “aukabíllinn” þar sem ég hafði fengið “aðalbílinn” lánaðan (og minn þessvegna hjá henni) til að skutla einni frænkunni í viðbót í flug og það var eiginlega ekkert í aukabílnum og því ekkert tekið, bara öllu ruslað út úr hanskahólfinu.

Minn bíll var annað mál.

Þar var íþróttataska sonar míns, Ray-Ban sólgleraugu frá mömmu, fullt af prjónuðum treflum, smápeningar, eitt gjafabréf í andlitssnyrtingu, tvær inneignarnótur og bæði debet og kredit kortin mín!

Það var búið að rusla öllu til, tæta út úr hanskahólfinu og láta greipar sópa, hélt ég.

En þegar betur var að gáð, voru bara tveir hlutir horfnir. Íþróttataskan (20 ára gömul Nike íþróttataska) og Ray-Ban sólgleraugun. Það var meira að segja búið að taka íþróttafötin og skónna upp úr töskunni!

Kortin mín, gjafabréfið og tvær inneignarnótur upp á samtals 80.000 krónur voru ennþá í bílnum.

Nú veit ég ekki hvernig þjófar hugsa, en þetta er samt stór furðulegt. Smápeningarnir voru ekki einu sinni teknir, veskið með þeim var opnað en ég held að það hafi ekki 1 króna verið tekin!

Við reiknum með að íþróttataskan hafi verið tekin undir annað þýfi (og Ray-Ban sólgleraugun voru flott) en þetta er mögulega besta útkoma úr innbroti sem hægt er að hugsa sér.

Ummæli

Vinsælar færslur