Eftir 16 daga hef ég komist að því...

(English below)

... að ég hata fátt meira en að ganga með veski og nota seðla við innkaup.

Svo ég ætla að beila á þessu markmiði, en halda áfram að spara með því að vera með matarplan og taka alltaf með mér nesti og kaupa ekki hluti sem mig vantar ekki.


Það hefur gengið rosalega vel að kaupa hluti sem mig vantar ekki og fyrir utan dekkjaskipti (bráðnauðsynleg þar sem sprakk á bílnum) og bílaþvott (bráðnauðsynleg þar sem ég var hætt að sjá út) hef ég ekki keypt neitt í janúar nema matvöru. 

Ég hef hinsvegar alls ekki staðið við það að nota bara seðla, því ég geri ekki annað en að gleyma veskinu mínu og verð sjúklega pirruð þegar ég fatta á leiðinni heim úr vinnunni að ég er ekki með veskið en það vantar mjólk. 
Svo ég ætla að hætta að nota seðla og pína sjálfa mig til að ganga með veski, því lífið er alltof stutt til að gera hluti sem mér finnast leiðinlegir :D 

Við erum búin að standa við matarplanið 90% í 16 daga og ég og yngri sonurinn höfum tekið með okkur nesti í vinnu og skóla frá 6. janúar. Við höfum ekki keypt neinn skyndibita, ég hef ekki farið á Joe and the juice eða í bakaríið. Þetta er risastórt skref fyrir mig sem hef óþægilega oft eytt alltof miklum peningum á þessum stöðum. 
Ég er hinsvegar ekki dýrlingur og hef keypt mér súkkulaði í sjálfsalanum í vinnunni tvisvar þrisvar á þessum dögum. 

Það hefur svo ekki gengið vel með að fara út að hlaupa heldur, en ég er kuldaskræfa og þarf plús gráður til að nenna út úr húsi. Kannski lagast ástandið í febrúar :D

En á morgun flýg ég til Parísar og þaðan til Rúmeníu á sunnudaginn og fer á BOBCATSSS ráðstefnu sem ber yfirskriftina: Thinking for Tomorrow: Redefining Information Networks in the Digital Age. 
Ég er mjög spennt fyrir að fara til Rúmeníu og ætla að skoða Bran kastalann (Drakúla) og Corvin kastala sem er sá stærsti í Evrópu. Ég ætla líka að borða klassískan Rúmenskan mat þó að megin uppistaðan virðist vera svínakjöt, sem ég borða yfirleitt ekki, but when in Rome (eða Romania) þá gerir man eins og Rómverjarnir :D

-----------------

After 16 days I've found out...

…that I hate very few things more than carrying a wallet and using cash when shopping.

So I’ve decided to bail on that goal, but continue saving by sticking to a meal plan, always bringing packed lunches, and not buying things I don’t need.

It has actually gone extremely well not buying things I don’t need, and apart from changing my tires (absolutely necessary since one blew out on the car) and a car wash (absolutely necessary since I could barely see out), I haven’t bought anything in January other than groceries.

I have, however, completely failed at sticking to using only cash, because all I do is forget my wallet and get incredibly annoyed when I realize on my way home from work that I don’t have my wallet—but we’re out of milk.

So I’m going to stop using cash and stop forcing myself to carry a wallet, because life is far too short to do things I find annoying :D

We’ve managed to stick to the meal plan about 90% of the time for 16 days now, and my younger son and I have brought packed lunches to work and school since January 6. We haven’t bought any fast food, I haven’t gone to Joe & The Juice or the bakery. This is a huge step for me, as I’ve uncomfortably often spent far too much money at those places.

That said, I’m no saint and I have bought myself chocolate from the vending machine at work three times during this period.

Going out running, on the other hand, hasn’t gone very well, but I’m sensitive to the cold and need above-freezing temperatures to bother leaving the house. Maybe things will improve in February :D

Tomorrow I’m flying to Paris, and on Sunday I fly on to Romania to attend the BOBCATSSS conference titled Thinking for Tomorrow: Redefining Information Networks in the Digital Age.
I’m very excited to go to Romania and plan to visit Bran Castle (Dracula’s Castle) and Corvin Castle, which is the largest in Europe. I also plan to eat traditional Romanian food, even though the main ingredient seems to be pork, which I usually don’t eat—but when in Rome (or Romania), do as the Romans do :D

Ummæli

Vinsælar færslur