Home sweet home

(English below)


Komin heim eftir frábæra ferð til Rúmeníu þar sem ég kynntist fullt af frábæru fólki og lærði mjög mikið á að fara, ekki bara um Rúmeníu, heldur auðvitað á ráðstefnunni sjálfri. Það er alltaf svo áhugavert að sjá hvað fólk er að gera í upplýsingafræði annarsstaðar í Evrópu. Ég ætla hinsvegar ekki að skrifa um ráðstefnuna í dag, ég þarf aðeins að melta allt og lesa aftur yfir greinarnar og ritgerðirnar sem voru kynntar á ráðstefnunni. 

Eins og þið getið lesið í fyrri póstum er ég í markvissu sparnaðarátaki á þessu ári. Þrátt fyrir það ákvað ég að kaupa nokkra hluti í Rúmeníu sem voru ekki á neinum lista. En ég keypti þó ekki hluti eins og sjampó og krem, þó að þau séu MIKIÐ ódýrari en hluti ástæðunnar er ekki bara sparnaður (því þá hefði ég auðvitað átt að kaupa þetta því það var ódýrara) heldur líka vegna þess að ég ætla ekki að kaupa neinar snyrtivörur nema að ég klári eitthvað sambærilegt áður. Ég eyddi samt ekki miklu fyrir utan úrið sem sést á myndinni, það var alveg í dýrari kantinum, en ég vil bara frekar nota venjulegt úr en snjallúr suma daga. 

Talandi um að klára hluti áður en ég kaupi nýja, þá gengur Project pan alveg þokkalega. Þar sem þetta "átak" er upprunið í Ameríku og öll hugtök og heiti eru á ensku, þá er eitt hugtak sem mig langar að útskýra aðeins. Á ensku er það "hate panning" og þýðir að klára eitthvað sem þér líkar alls ekki og þú eiginlega hatar að nota þessa vöru.

Ég er með nokkrar vörur sem ég "hata" en ég ákvað að í staðinn fyrir að "haturs klára" þær, þá myndi ég finna nýjar aðferðir við að nota þær. 

Eitt af þessu er La Roche-Posey andlitskremið mitt. Það á að vera fyrir rósroða, en mig svíður í augun af því og það veldur smá útbrotum á kinnunum á mér ef ég nota það marga daga í röð. Ég ákvað því að hætta að nota það sem andlitskrem og er að klára það á hálsinn á mér og bringuna. 

Þetta á líka við um varasalva frá Lip Smackers. Bragðið af þeim er viðbjóðslegt og ég get bara alls ekki notað þá á varirnar á mér, en hvað er varasalvi? Er hann ekki bara feitt, græðandi krem? Jú jú, það er hann svo sannarlega og því nota ég Lip Smackers varasalvana sem krem á mína þurru hæla áður en ég fer í sokka á morgnana! 

En hvað á að gera við hárnæringu sem passar hárinu mínu alls ekki? Ég hef verið að nota hana sem mýkingarefni þegar ég þvæ ullarpeysur! Það er nefnilega hægt að nota allskonar vörur í öðrum tilgangi en þær voru upphaflega hannaðar til að þjóna. 

------------------------------------

I came home after a fantastic trip to Romania where I met a lot of wonderful people and learned a great deal from going — not just about Romania, but of course at the conference itself. It is always so interesting to see what people in information science are doing elsewhere in Europe. However, I am not going to write about the conference today. I need a bit of time to process everything and re-read the articles and papers that were presented there.

As you can read in previous posts, I am doing a focused savings challenge this year. Despite that, I decided to buy a few things in Romania that were not on any list. I did not buy things like shampoo and creams, even though they are MUCH cheaper there. Part of the reason is not just saving money (because then I obviously should have bought them since they were cheaper), but also because I have decided not to buy any cosmetics unless I finish a similar product first. I did not spend much overall, except for the watch you can see in the picture. That was on the more expensive side, but some days I simply prefer wearing a regular watch rather than a smartwatch.

Speaking of finishing things before buying new ones, my Project Pan is going fairly well. Since this “challenge” originated in the United States and all the terms and names are in English, there is one term I would like to explain a bit. In English it is called “hate panning,” which means finishing something you really do not like and almost hate using.

I have a few products that I “hate,” but instead of “hate panning” them, I decided to find new ways to use them.

One of these is my La Roche-Posay face cream. It is supposed to be for rosacea, but it stings my eyes and causes a bit of a rash on my cheeks if I use it several days in a row. So I decided to stop using it as a face cream and am instead finishing it on my neck and chest.

The same applies to some Lip Smackers lip balms. The taste is disgusting and I simply cannot use them on my lips, but what is lip balm really? Is it not just a fatty, healing cream? Yes, absolutely — so I use the Lip Smackers as a cream on my dry heels before putting on socks in the morning.

And what should you do with conditioner that does not suit your hair at all? I have been using it as a fabric softener when washing wool sweaters. It is actually possible to use many products for purposes other than what they were originally designed for.

Ummæli

Vinsælar færslur