Föt og skór - Clothes and shoes

 


(English below)

Ég á samtals 112 115 flíkur (sokkar, nærbuxur, brjóstahaldarar og sokkabuxur ekki talið með) og 19 pör 21 par af skóm. Mér finnst ég eiga meira en nóg af fötum og langar yfirleitt ekki í föt, nema útivistarföt... mig langar alltaf í meira af þeim :)

Í október (minnir mig) tók ég mig til og myndaði og skráði hverja einustu flík í appið Open wardrobe og ætlaði að vera voðalega dugleg að skrá í hvaða fötum ég væri að ganga, en það entist í svona mánuð (eða minna) því ég er alls ekki "meðferðarheldin". 
Ég skráði svo alla skónna mína í gær og komst að því að ég á alltof mikið af skóm, en þetta eru nánast allt íþróttaskór til einnrar eða annarrar notkunnar og munu endast mér í mörg ár því ég nota þá alla til skiptis.

Ég sveik hinsvegar tvö markmiðið vel og innilega í gær. 
Ég keypti mér tvenna skó og þrjá ullarboli. 
Það var síðasti dagur útsölunnar hjá Eirberg og ég keypti mér Altra Lone Peak á 11.000 kr í staðinn fyrir 28.000 og Altra Timp á 11.500 í stað 29.000. 
Svo er GG sport líka með útsölu og ég átti inneignarnótu hjá þeim síðan í fyrra sumar (keypti tjald sem ég var ekki ánægð með og skilaði því) og Icebreaker hlýrabolirnir sem ég er í ALLA DAGA eru á 7000 kr í staðinn fyrir 10.000, svo ég notaði tækifærið og fékk nánast 3 fyrir 2 (ok ég er að afsaka þessa óþarfa eyðslu). 


Annars verð ég að viðurkenna að mér finnst sparnaðaraðgerðirnar ganga lýgilega vel. Ég er búin að taka nesti með í vinnuna í yfir 90% tilfella, við höfum ekki keypt neinn skyndibita, ég hef ekki keypt neitt á netinu, ég hef ekki keypt neinar snyrtivörur nema til að koma í staðinn fyrir það sem hefur klárast (eitt rakakrem og varasalvar úti í Rúmeníu)

- --------------------------------------

Clothes and shoes

I own a total of 112 115 garments (not counting socks, underwear, bras, and tights) and 19 21 pairs of shoes. I feel like I have more than enough clothes and generally don’t want any new ones—except for outdoor clothing… I always want more of that 🙂

In October (I think), I took the time to photograph and log every single item of clothing into the Open Wardrobe app and planned to be very diligent about recording what I wore each day. That lasted about a month (or less), because I am definitely not very consistent with things like that.

I logged all my shoes yesterday and realized I have far too many shoes. But they are almost all athletic shoes for one purpose or another, and they will last me many years since I rotate between using them.

However, I very thoroughly broke two of my goals yesterday.

I bought two pairs of shoes and three wool shirts.

It was the last day of the sale at Eirberg, and I bought Altra Lone Peak for 11,000 ISK instead of 28,000 and Altra Timp for 11,500 instead of 29,000. GG Sport is also having a sale, and I had a store credit from last summer (I bought a tent I wasn’t happy with and returned it). The Icebreaker wool base layers that I wear EVERY DAY were on sale for 7,000 instead of 10,000, so I took the opportunity and basically got 3 for the price of 2 (okay, I’m justifying this unnecessary spending).

Otherwise, I have to admit that my cost-cutting efforts are going suspiciously well. I have brought lunch to work in over 90% of cases, we haven’t bought any fast food, I haven’t bought anything online, and I haven’t bought any cosmetics except to replace things that ran out (one moisturizer and lip balms while I was in Romania).


Ummæli

Vinsælar færslur