Ég tók stökkið - I took the plunge
(English below)
Ég tók loksins af skarið og eyddi facebook, messenger og whatsapp á sunnudaginn (8. mars) eftir að humma það fram af mér í langan tíma því ég var (er) svo hrædd um að missa sambandið við eitthvað af vinum mínum sem hafa hag af því að nota meta áfram. Vinir sem eru með fyrirtæki eða þurfa á því að halda að geta auglýst sig og sína viðburði fyrir sem flesta. Ég er ekki með neitt þannig og tel því að mínum persónulegu hagsmunum sé betur borgið í meta-lausri tilveru.
Ég var búin að vera með FB afvirkjað meira en minna frá því um áramótin og það var því ekki stórt skref að eyða því alveg, en það er messenger sem er "vandamálið" á Íslandi og whatsapp er "vandamálið" fyrir Evrópsku vini mína. Allir íslendingar virðast vera á messenger og enginn virðist vilja skipta. Strákarnir mínir eru reyndar ekki á messenger og við höfum vanið okkur á að senda hvort öðru bara sms og það hefur gengið fullkomlega og aldrei verið vesen.
Ég er búin að tala meira í símann síðustu 2 daga en alla vikuna þar á undan og ég held að mér líki það bara vel :)
-----------------
I finally took the plunge and deleted Facebook, Messenger, and WhatsApp on Sunday (March 8th) after putting it off for a long time because I was (am) so afraid of losing touch with some of my friends who benefit from continuing to use Meta. Friends who have businesses or need to be able to advertise themselves and their events to as many people as possible. I don't have anything like that, so I believe my personal interests are better served in a Meta-free existence.
I had already kept FB deactivated more or less since the New Year, so it wasn't a big step to delete it completely, but Messenger is the "problem" in Iceland and WhatsApp is the "problem" for my European friends. All Icelanders seem to be on Messenger and no one seems to want to switch. My boys actually aren't on Messenger, and we have gotten used to just sending each other texts, which has worked perfectly and never been a hassle.
I've talked on the phone more in the last 2 days than the entire week before, and I think I really like it :)


Ummæli
Skrifa ummæli